SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn20. mars 2019

Spennandi fyrirlestur um hrjáð börn og fleira

Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum nútímabókmenntum, er sjötti fyrirlesari í fyrirlestraröð RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum – og UNU-GEST – Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna – á vormisseri 2019. Fyrirlestur hennar nefnist: „„Það var barn í dalnum …“. Um hrjáð börn og fleira í verkum Steinunnar Sigurðardóttur“ og að venju er fyrirlesturinn fluttur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands, fimmtudaginn 21. mars kl. 12:00-13:00.

Í lýsingu á fyrirlestrinum segir:

Mjög margar af bókum Steinunnar Sigurðardóttur fjalla um dramatísk tilfinningasambönd, vináttu, stuðning og samstöðu. Eða þrá einmana fólks eftir slíkum tengslum sem geta ekki orðið. Það reynist einhver „ómögulegleiki“ í stöðunni. Oft eru fortíðardraugar á ferð. Það eru börn á sveimi; draugabörn, villibörn og börn sem hafa verið beitt ofbeldi eða verið vanrækt. Þau hafa iðulega verið svikin af fólki sem áttu að vernda þau. Hvernig er hægt að segja sögurnar af þeim og þarf að gera það?

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor í íslenskum samtímabókmenntum í Íslensku og menningardeild. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði, sálgreining og læknahugvísindi. Dagný hefur gefið út nokkur fræðirit og birt fjölda greina í blöðum og tímaritum.

Fyrirlesturinn er á íslensku og er öllum opinn.