SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir15. febrúar 2019

Nýtt ljóð ort í tilefni frétta af bláum tönnum og horfnum konum

Sigrún Björndóttir skáld orti ljóð í tilefni frétta af bláum tönnum og horfnum konum og birtum við það hér á Skáld.is sem er einmitt vefur helgaður konum sem skrifa. Nánari upplýsingar um Sigrúnu má finna í Skáldatalinu.

Sigrún Björnsdóttir - Nýtt ljóð

Lapis lazuli

hugsa til þín systir

með hafið í penslinum

rándýrt himnarykið

heiðríkjuna sjálfa

hugsa um tungu þína

væta helgasta litinn

heitar varir

hvessa drættina

þú myndlýstir handrit

öðrum betur

munstraðir skinnið

fínbláum línum

hugsa um strit þitt

mulinn stein, Maríuklæði

hafblik í tönnum þínum

þúsund árum síðar

Sigrún Björnsdóttir