SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 3. febrúar 2019

Strandir - Rósa B. Blöndals

Þú norðurbyggð, hve nóttin þín er löng og nístingsþeli haustsins kemur fljótt með skammra daga skuggans þröngu göng, er skyggja hug og sjúga lífsins þrótt.

Hér finnst mér kynlegt sog frá djúpum sjó að sál mér líði þungum tregaróm, og mjúklát haustsins hálfdimm aftanró að hjarta mínu leggi frosin blóm.

Og seinna verður sólargangan þung, er sést hún roða fjallsins efstu brún. Hve fögur, elskuð, fagurrjóð og ung, er fannhvítt enni dalsins kveður hún.

En hér á vetur tunglsins töfranótt. Þá tindrar hjarnið allt af stjörnumergð. Og hér er fegurst vorsins geislagnótt. Og grænna ilmanlyng þú hvergi sérð.

(Rósa B. Blöndals, 1966)