SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn18. nóvember 2017

Alþýðukona á bókamessunni í Hörpu - Tvennir tímar, endurminningar Hólmfríðar Hjaltason endurútgefin

Tvennir tímar, endurminningar Hólmfríðar Hjaltason eftir Elínborgu Lárusdóttur hjá Angústúru

Í dag kom út bókin Tvennir tímar, endurminningar Hólmfríðar Hjaltason eftir Elínborgu Lárusdóttur hjá útgáfufélaginu Angústúru. Hér er á ferðinni einstök saga alþýðukonu sem bjó við sáran skort og vinnuþrælkun hjá vandalausum í uppvexti í Fljótum í Skagafirði. Tvennir tímar kom fyrst út árið 1949 en þessari nýju útgáfu er fylgt úr hlaði með formála eftir Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands og langömmubarn Hólmfríðar, og eftirmála eftir Soffíu Auði Birgisdóttur, bókmenntafræðing, auk ljósmynda úr safni fjölskyldu Hólmfríðar. Soffíu Auði Birgisdóttur sem situr í ritstjórn Skáld.is fjallar um bókina á Bókamessunni í Hörpu (Ríma B), í dag laugardaginn 18. nóv, kl. 13.00. Tvennir tímar verður til sölu á bás Angústúru á bókamessunni.

 

Ása Jóhanns