SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn16. nóvember 2017

Vigdís Grímsdóttir hlýtur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Vigdís Grímsdóttir hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2017

Vigdís Grímsdóttir hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2017. Verðlaunin, sem veitt eru árlega, afhenti Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarráðherra í menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Ráðgjaf­ar­nefnd dags ís­lenskr­ar tungu, sem í sitja Bald­ur Hafstað, pró­fess­or em­er­ít­us, Guðrún Ing­ólfs­dótt­ir ís­lensku­fræðing­ur og Dag­ur Hjart­ar­son kenn­ari og rit­höf­und­ur, sagði í rökstuðningi sínum:

„Vaknaðu Þyrnirós heitir ein af smásögunum í Tíu myndir úr lífi þínu, fyrstu bók Vigdísar Grímsdóttur (f. 1953) frá árinu 1983, sem þá þegar hafði vakið athygli fyrir ljóð í ýmsum tímaritum. Vaknaðu Þyrnirós er smásaga sem hefst á ljóði með hvatningarorðum til sofandi konu, reyndar ekki þeirrar sömu Þyrnirósar og við lesum fyrir börnin okkar, því hún brosir gömul og grett framan í prinsinn. Í textanum sem fylgir þessu skuggalega ævintýraljóði lætur íslensk yfirstéttarkona hugann reika og þar standa meðal annars þessi orð: „Ég roðna hvorki af stolti né ánægju þó að einhverjir sjái í mér falinn listamann. Ég er sannfærð um hæfileika mína og veit að hefði ég ekki gifst Páli fyrir 20 árum þá hefði ég orðið skáldkona. Þetta veit ég; en mér kemur aldrei til hugar að sjá eftir þeirri ákvörðun sem ég tók á sínum tíma.“ Það er eins og Vigdís hafi í þessari sögu, Vaknaðu Þyrnirós, sögunni sem hún skrifaði fyrir aldarþriðjungi, slegið tón, ort stef sem hefur fylgt okkur allar götur síðan með óvæntum tilbrigðum og töfrandi myndum, jafnt í ljóðum sem óbundnu máli: skáldsögum og skáldaðri ævisögu en einnig í viðtalsbókum við kynsystur. Hún hefur vakið okkur, heillað okkur inn í sína töfrandi veröld sem hefur síðan orkað hvetjandi á leikstjóra og kvikmyndafólk til nýrrar sköpunar. Um eina af skáldsögum Vigdísar var sagt: „Hún lýkur upp dyrum spennandi og heillandi heims … en úr fjarska berst þungur dynur mikilla örlaga.“ Vigdís hefur haft mótandi áhrif á samtíð okkar og menningu. Með rödd sinni, stundum ögrandi og tilfinningaþrunginni, stundum mildri og sefjandi, hefur hún hrifið okkur með sér og fengið okkur til að takast á við krefjandi spurningar um manneskjuna og þá veröld sem við lifum og hrærumst í. Hún knýr okkur ekki síst til að líta í eigin barm eins og hún gerir sjálf, til dæmis í skáldævisögunni Dísusögu þar sem Dísa á gula kjólnum og Gríms í svarta sjalinu gera upp gömul vandamál og hlífa sér hvergi. Vigdís Grímsdóttir hefur, hvar sem hún er stödd: á Kleppsvegi, í Norðurfirði eða Trékyllisvík, hreyft við lesendum, ekki aðeins hér heima, heldur víða um lönd, með sínum seiðmagnaða frásagnarmáta.“

Skáld.is óskar Vigdísi Grímsdóttur innilega til hamingju með verðlaunin. Nánari upplýsingar um Vigdísi má finna í Skáldatali.

 

Ása Jóhanns