SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 4. janúar 2017

oh-h - Ingunn Snædal

Ingunn Snædal

ef ég yrði snert
af áhugasömum aðila
óttast viðbrögð mín


andvarpaði lágt eins
og regnbogi sem fellur
í regnvota laut
titraði eins og tré
sem riðar til falls í skóginum

eða

kastaði mér ýlfrandi af girnd
á viðkomandi
brysti í grát
brotnaði í þúsund mola

-------------------------------------------------

Úr bókinni: Það sem ég hefði átt að segja næst: þráhyggjusögur Ár: 2011 Staður: Reykjavík Útgefandi: Bjartur