- Jóna Guðbjörg Torfadóttir
Útvaldar konur

Aðventan er tími biðarinnar eftir hátíð ljóss, friðar og bókalesturs en ótal útgáfuhóf og aðrar uppákomur til að kynna nýjar bækur stytta mjög stundirnar og lífga upp á dagana. Aðventan er einnig sá árstími þegar biðin eftir tilnefningum til Fjöruverðlaunanna, Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans er á enda og bóksalar tilkynna hvaða bækur þykja bestar á þeim bæjunum.
Áður hefur verið sagt frá því, hér á Skáld.is, hvaða bækur hlutu tilnefningar til Fjöruverðlaunanna en hér á eftir verða listaðar upp tilnefndar bækur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans ásamt bestu bókunum að mati bóksala.
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Þann 1. desember síðastliðinn var tilkynnt hvaða bækur voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Tilnefndar bækur voru:
Í flokki fagurbókmennta
Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur
Olía eftir Svikaskáld (Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir)
Að auki hlutu tilnefningar bækurnar Sigurverkið eftir Arnald Indriðason, Ljósgildran eftir Guðna Elísson og Sextíu kíló af kjaftshöggum eftir Hallgrím Helgason.
Í flokki barna- og ungmennabóka
Bál tímans : Örlagasaga Möðruvallabókar í sjö hundruð ár eftir Arndísi Þórarinsdóttur
Í huganum heim eftir Guðlaugu Jónsdóttur og Hlíf Unu Bárudóttur
Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur
Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur
Að auki hlaut tilnefningu bókin Ferðalagið : styrkleikabók eftir Jakob Ómarsson
Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis
Sturlunga saga eða Íslendinga sagan mikla I-III eftir Guðrúnu Ásu Grímsdóttur
Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu : Um notkun dönsku og erlend áhrif á íslensku eftir Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur
Sigurður Þórarinsson : Mynd af manni I-II eftir Sigrúnu Helgadóttur
Bærinn brennur : Síðasta aftakan á Íslandi eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur
Að auki var tilnefnd bókin Vatnajökulsþjóðgarður: Gersemi á heimsvísu eftir Snorra Baldursson.
Verðlaun bóksala
Miðvikudaginn 8. desember var greint frá því í Kiljunni hvaða bækur hlutu Verðlaun bóksala þetta árið. Tilnefndar bækur voru:

Í flokki íslenskra skáldverka
Merking eftir Fríðu Ísberg
Sextíu kíló af kjaftshöggum eftir Hallgrím Helgason
Úti eftir Ragnar Jónasson
Í flokki ljóða
Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal
Kona lítur við eftir Brynju Hjálmsdóttur
Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur
Í flokki ungmennabóka
Sterk eftir Margréti Tryggvadóttur
Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur
Drekar, drama og meira í þeim dúr eftir Rut Guðnadóttur
Í flokki íslenskra barnabóka
Fagurt galaði fuglinn sá eftir Önnu Margréti Marínósdóttur og Helga Jónasson
Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur
Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason
Í flokki ævisagna
Rætur eftir Ólaf Ragnar Grímsson
Minn hlátur er sorg eftir Friðriku Benónýsdóttur
11.000 volt eftir Erlu Hlynsdóttur
Í flokki fræðibóka og handbóka
Laugavegur eftir Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg
Bærinn brennur eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur
Kristín Þorkelsdóttir eftir Birnu Guðfinnsdóttur og Bryndísi Björgvinsdóttur
Tilnefningar til Blóðdropans
Fimmtudaginn 9. desember voru kynntar tilnefningar til Blóðdropans 2022, fyrir bestu
glæpasögu ársins 2021. Tilnefndar bækur voru:
Náhvít jörð eftir Lilju Sigurðardóttur
Farangur eftir Ragnheiði Gestsdóttur
Lok, lok og læs eftir Yrsu Sigurðardóttur
Auk þeirra voru tilnefndar glæpasögurnar Horfnar eftir Stefán Mána og Út að drepa túrista eftir Þórarin Leifsson.