SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir er fædd í Reykjavík 25. ágúst 1954.

Þórunn lærði sagnfræði í Lundi Svíþjóð veturinn 1973-1974 og sögu og myndlist við Instituto Allende í Mexíkó veturinn 1977-1978. Hún lauk meistaraprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1983 og hefur síðan fengist við ritstörf.

Eftir Þórunni liggur fjöldi skáldverka; skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur og sagnfræðirit. Þá hefur húnn einnig skrifað fjölda greina og þátta fyrir útvarp og sjónvarp. Barnævisöguna Sól í norðurmýri (1993) og nóvelluna Dag kvennanna (2010) skrifaði hún með Megasi.

Fyrsta skáldsaga Þórunnar, Höfuðskepnur, kom út árið 1994. Skáldsagan Alveg nóg var tilnefnd til Menningarverðlauna DV 1997 og Stúlka með fingur hlaut síðan Menningarverðlaun DV árið 1999 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2001.

Skáldsögur Þórunnar Kalt er annars blóð (2007) og Mörg eru ljónsins eyru (2010) eru glæpasögur sem gerast í samtímanum en byggja báðar á Íslendingasögum, sú fyrri á Njálu og sú seinni á Laxdælu. Þær voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta.

Þórunn hefur einnig hlotið tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka fyrir bækurnar Snorri á Húsafelli: saga frá 18. öld (1989), Til móts við nútímann (4. bindi Kristni á Íslandi, 2000) og Upp á sigurhæðir: saga Matthíasar Jochumssonar (2006) og Bærinn brennur. Síðasta aftakan á Íslandi (2021). Upp á Sigurhæðir var auk þess tilnefnd til verðlauna Hagþenkis og fékk viðurkenningu Félags bókasafns- og upplýsingafræða fyrir bestu frumsömdu fræðibók ársins. 

Þórunn er búsett í Reykjavík.


Ritaskrá

  • 2023  Lítil bók um stóra hluti. Hugleiðingar
  • 2021  Bærinn brennur. Síðasta aftakan á Íslandi
  • 2018  Skúli fógeti: Faðir Reykjavíkur - saga frá átjándu öld
  • 2018  Villimaður í París
  • 2015  Stúlka með höfuð
  • 2013  Stúlka með maga
  • 2011  Með sumt á hreinu. Jakob Frímann lítur um öxl
  • 2010  Dagur kvennanna. Ástarsaga (ásamt Megasi)
  • 2010  Mörg eru ljónsins eyru
  • 2008  Loftnet klóra himin
  • 2007  Kalt er annars blóð
  • 2006  Upp á sigurhæðir ævisaga Matthíasar Jochumssonar
  • 2002  Horfinn heimur: Árið 1900 í nærmynd
  • 2001  Hvíti skugginn
  • 2000  Engin venjuleg kona; litríkt líf Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu
  • 2000  Kristni á Íslandi 4. bindi 2000 (fyrri hluti bókarinnar)
  • 1999  Stúlka með fingur
  • 1997  Alveg nóg
  • 1997  Leikfélag Reykjavíkur: Aldarsaga (fyrri hluti bókarinnar)
  • 1994  Höfuðskepnur: ástarbréfaþjónusta
  • 1993  Sól í Norðurmýri: píslarsaga úr Austurbæ (æskusaga Megasar)
  • 1992  Júlía
  • 1991  Fuglar
  • 1989  Snorri á Húsafelli: saga frá 18. öld
  • 1986  Sveitin við sundin: búskapur í Reykjavík 1870-1950
  • 1986  Af Halamiðum á Hagatorg (ævisaga Einars Jónssonar í Lækjarhvammi)

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2013  Fjöruverðlaunin fyrir Stúlku með maga
  • 2011  Rauða hrafnsfjöðrin fyrir Dagur kvennanna – ástarsaga (ásamt Megasi)
  • 2008  Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins
  • 2006  Viðurkenning Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða fyrir Upp á Sigurhæðir
  • 2000  Menningarverðlaun DV fyrir Stúlku með fingur
  • 1992  Fyrstu verðlaun í örverkasamkeppni Bjarts og frú Emilíu

 

Tilnefningar

  • 2021  Til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Bærinn brennur
  • 2013  Til Menningarverðlauan DV í bókmenntum fyrir Stúlku með maga
  • 2010  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Mörg eru ljónsins eyru
  • 2007  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Kalt er annars blóð
  • 2006  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Upp á Sigurhæðir
  • 2007  Til Heiðursverðlauna Hagþenkis fyrir Upp á Sigurhæðir
  • 2001  Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Stúlku með fingur
  • 2000  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Kristni á Íslandi (sem einn höfunda í 4. binda verki)
  • 1989  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Snorra á Húsafelli
  • 1997  Til Menningarverðlauna DV í bókmenntum fyrir Alveg nóg

 

Þýðingar

  • 2010  Antennae Scratch Sky (scratch scratch)
  • 2004  Flicka med finger (Inge Knudsson þýddi á sænsku)
  • 1999  Flickan med fingret (Inge Knudsson þýddi á sænsku)

 

Tengt efni