SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Áslaug Jónsdóttir

Áslaug Jónsdóttir fæddist þann 31. mars 1963.

Hún ólst upp á bænum Melaleiti í Melasveit í Borgarfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og stundaði síðan nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1984 - 1985. Áslaug nam við Listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn (Skolen for Brugskunst - Danmarks designskole) frá 1985 - 1989 þegar hún útskrifaðist frá teikni- og grafíkdeild skólans. Auk þess hefur hún tekið þátt í námskeiðum í Bandaríkjunum, Svíþjóð og á Íslandi.

Frá því að hún lauk námi hefur Áslaug starfað sem bókverkakona: myndskreytir, grafískur hönnuður, rithöfundur og myndlistamaður. Hún hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Þá hefur hún haldið námskeið og fyrirlestra á ýmsum vettvangi, m.a. í Háskólanum á Akureyri, hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, hjá Ung i Færeyjum og víðar á Norðurlöndum. Áslaug hefur einnig skrifað og myndlýst barnaefni fyrir sjónvarp. Hún var fréttaritari fyrir Morgunblaðið 1996-1998 og pistlahöfundur og teiknari á Degi 1998. Hún hefur átt sæti í stjórnum SÍUNG, félags barnabókahöfunda, og Fyrirmyndar, félags myndskreyta, frá 2001.

Áslaug hefur einnig skrifað handrit fyrir sjónvarp og leiksvið og sömuleiðis hafa sögur og greinar eftir hana birst í tímaritum.

Áslaug hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, m.a. hefur hún tvisvar fengið Dimmalimm, íslensku myndskreytiverðlaunin og hún hlaut Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2002 ásamt Andra Snæ Magnasyni fyrir Söguna af Bláa hnettinum.

Áslaug Jónsdóttir býr í Reykjavík.

 


Ritaskrá

  • 2023  til minnis:
  • 2023  Allt annar handleggur
  • 2021  Skrímslaleikur
  • 2020  Sjáðu!
  • 2017  Skrímsli í vanda
  • 2014  Skrímslakisi
  • 2012  Skrímslaerjur
  • 2011  Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu
  • 2009  Skrímsli í heimsókn
  • 2008  Skrímslapest
  • 2007  Ég vil fisk!
  • 2007  Gott kvöld
  • 2007  Skrímsli í myrkrinu
  • 2006  Stór skrímsli gráta ekki
  • 2005  Gott kvöld
  • 2004  Nei! sagði litla skrímslið
  • 2003  Eggið
  • 2003  Unugata
  • 1998  Sex ævintýri
  • 1996  Prakkarasaga
  • 1995  Einu sinni var raunamæddur risi
  • 1993  Á bak við hús - Vísur Önnu
  • 1991  Fjölleikasýning Ástu
  • 1991  Stjörnusiglingin
  • 1990  Gullfjöðrin

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2017  Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Skrímsli í vanda
  • 2015  Heiðurslisti alþjóðlegu IBBY samtakanna fyrir Skrímslakisi
  • 2008  Gríman, íslensku leiklistarverðlaunin fyrir Gott kvöld (barnasýning ársins)
  • 2006  Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur fyrir Stór skrímsli gráta ekki
  • 2005  Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar: Gott kvöld
  • 2005  Dimmalimm: Íslensku myndskreytiverðlaunin: Gott kvöld
  • 2004  Dimmalimm: Íslensku myndskreytiverðlaunin: Nei! sagði litla skrímslið
  • 2004  Heiðurslisti IBBY: Fyrir myndskreytingar í Krakkakvæðum eftir Böðvar Guðmundsson
  • 2002  Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins (ásamt Andra Snæ Magnasyni): Sagan af bláa hnettinum
  • 2002  Heiðursverðlaun IBBY: Sagan af bláa hnettinum (myndskreytingar)
  • 2000  Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur: Fyrir framlag til myndskreytinga í barnabókum
  • 1999  Viðurkenning úr Bókasafnssjóði höfunda
  • 1993  Viðurkenning Barnabókaráðsins, Íslandsdeildar IBBY

 

Tilnefningar

  • 2021  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Sjáðu!
  • 2017  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Skrímsli í vanda
  • 2013  Til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Skrímslaerjur
  • 2010  Til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir Gott kvöld (byggt á samnefndri bók)
  • 2006  Til Norrænu barnabókaverðlaunanna fyrir Gott kvöld
  • 1999  Til H.C. Andersen verðlaunanna fyrir myndskreytingar í barnabókum
  • 1999  Til Barnabókaverðlauna Fræðsluráðs Reykjavíkur: Sagan af bláa hnettinum (myndskreytingar)

 

Þýðingar

(í vinnslu)

Heimasíða

https://aslaugjonsdottir.com/

Tengt efni