SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ásdís Halla Bragadóttir

Ásdís Halla lauk B.A. prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard háskóla vorið 2000. Að námi loknu starfaði Ásdís Halla sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu.

Ung hóf hún afskipti af stjómmálum. Aðeins 15 ára var hún orðin virk innan Sjálfstæðisflokksins á Akranesi og tók þátt í stúdentapólitíkinni á háskólaárunum. Hún varð formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna árið 1997 og þar með fyrsta konan til að verða formaður í 70 ára sögu SUS. Hún er líka fyrsta konan sem gegnir embætti formanns Frjálsíþróttasambands Íslands frá því sambandið var stofnað. 

Ásdís Halla er fyrrum bæjarstjóri í Garðabæ, var forstjóri BYKO,  í stjórn Árvakurs og er með mikil umsvif í viðskiptalífinu, einkum á sviði einkavæðingar í heilbrigðisþjónustu.

Bækur hennar Tvísaga og Hornauga fjalla um dramatíska fjölskyldusögu hennar á afar opinskáan máta.  Ein er skáldsaga þar sem fjallað er um einmanaleika eldri borgara. Læknirinn í Englaverksmiðjunni (2021) er um bróður langalangafa Ásdísar Höllu, ættingja sem var umlukinn þögn í fjölskyldunni en vel þekktur á sinni tíð.

Ásdís Halla er gift Aðalsteini Jónassyni lögfræðingi og eiga þau tvo syni.

Ljósmynd: Viðskiptablaðið


Ritaskrá

  • 2021   Læknirinn í englaverksmiðjunni
  • 2020   Ein, sönn saga
  • 2018   Hornauga
  • 2016   Tvísaga, móðir, dóttir, feður
  • 2000   Í hlutverki leiðtogans, líf fimm forystumanna í nýju ljósi

Tilnefningar

2016   Tvísaga tilnefnd til bóksalaverðlaunanna

Tengt efni