Sigurbjörg Friðriksdóttir er fædd 1959. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum á Norðurlandi vestra, tannfræðiprófi frá Háskólanum í Oslo, og uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands. Sigurbjörg hefur áður birt ljóð í dagatalsbókinni Konur eiga orðið allan ársins hring.Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Gáttatif, kom út í seríu Meðgönguljóða árið 2016. Henni var ritstýrt af Jóni Kalmani Stefánssyni.
Heimild: Vefsíða Partusar
Sigurbjörg Friðriksdóttir
-
2019 Vínbláar varir
-
2016 Gáttatif
-