Rósa B. Blöndals hét fullu nafni Jóhanna Rósa Björnsdóttir Blöndal. Hún fæddist 20. júlí árið 1913 í Reykjavík. Rósa nam í Héraðsskólanum á Laugarvatni og Kennaraskóla Íslands. Hún lauk kennaraprófi árið 1934 og starfaði síðan við kennslu og skólastjórn víða um land. Lengst af var Rósa kennari á Laugarvatni og prestsfrú á Mosfelli í Grímsnesi eftir að hún giftist séra Ingólfi Ástmarssyni. Frá árinu 1981 bjuggu hjónin á Selfossi. Ingólfur lést árið 1994 en Rósa 6. nóvember árið 2009.
Rósa vann mikið að ritstörfum; hún sendi frá sér bæði ljóð og lausamál, hélt erindi og birti greinar í blöðum. Einnig birtist eftir hana smásaga í Pennaslóðum árið 1959 en þar áttu tíu aðrar nafnkunnar konur stuttar sögur. Í viðtali frá árinu 1964 við þau hjónin talar Rósa hins vegar af mikilli hógværð um skáldskap sinn, vill ekki á hann minnast og kallar hann „barnabrek“ og „æskuóra.“ Það þurfi hæfileika til að skrifa segir hún.
Heimildir:
- Guðjón Albertsson. 1964, 5. júlí. „Prestshjónin.“ Alþýðublaðið: Sunnudagsblaðið. Slóðin er https://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3631309
- Helga Kress. 2001. „Rósa B. Blöndals 1913,“, bls. 306. Stúlka. Ljóð eftir íslenskar konur. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík.
- Soffía M. Gústafsdóttir. 2009. „Rósa B. Blöndals.“ Mbl.is. Slóðin er https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1311044/
Myndin af Rósu er sótt á vefsíðuna Discogs.
Rósa B. Blöndals
- 2008 Kveðjur
- 2000 Íslands aldar árþúsunda-aldamót
- 1998 Flúra, lúra, lýra
- 1998 Hátíðarljóð á Þorláksmessu
- 1989 Skáld-Rósa
- 1987 Leyndar ástir í Njálu
- 1974 Óður til Íslands
- 1967 Mývatn - Þjóðgarður
- 1966 Fjallaglóð
- 1938 Lífið er leikur
- 1933 Þakkir
- 1955 Smásagnasamkeppni Samvinnunnar: Nafn drottningarinnar