SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Kristín Steinsdóttir

Kristín Steinsdóttir fæddist á Seyðisfirði 11. mars 1946.

Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri hóf hún nám við Kennaraskóla Íslands og útskrifaðist sem kennari 1968. Hún kenndi við gagnfræðadeild Réttarholtsskóla í Reykjavík í þrjú ár en hélt síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún dvaldist veturinn 1971-72 við nám í dönsku og dönskum bókmenntum við Kennaraháskólann þar í borg. Þaðan fór hún til Göttingen í Þýskalandi þar sem hún var búsett næstu sex árin, frá 1972-1978 og lagði stund á nám í þýsku og dönsku meðfram heimilisstörfum og barnauppeldi.

Árið 1978 fluttist Kristín ásamt fjölskyldu sinni til Noregs en ári síðar til Íslands og bjó lengst af á Akranesi fyrir utan ársdvöl í Þrándheimi í Noregi 1998-1999. Á Akranesi kenndi Kristín fyrst við Brekkubæjarskóla en eftir að hún lauk B.A. prófi í dönsku og þýsku frá HÍ kenndi hún við Fjölbrautaskóla Vesturlands þar til hún sneri sér alfarið að ritstörfum árið 1988.

Kristín sat í stjórn Rithöfundasambands Íslands frá 1993-2001 og varð síðan formaður samtakanna 2010. Hún var formaður stjórnar Samtaka íslenskra barna- og unglingabókahöfunda (SÍUNG) 1999-2003.

Kristín hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og einnig hefur hún þýtt barnabækur úr þýsku. Hún hefur samið leikrit, bæði fyrir svið og útvarp, í samstarfi við systur sína, Iðunni Steinsdóttur rithöfund, og sent frá sér skáldsögur fyrir fullorðna. Þá hefur hún skrifað kennsluefni og smásögur sem hafa birst í ýmsum söfnum. Kristín hefur einnig skrifað kvikmyndahandrit með styrk úr Kvikmyndasjóði.

Kristín hefur hlotið margskonar verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Fyrsta bók hennar, Franskbrauð með sultu (1987) hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin sama ár. Engill í vesturbænum (2002) er margverðlaunuð, hún hlaut meðal annars Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 2003 og Norrænu barnabókaverðlaunin sama ár. Kristín hlaut viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 2007. Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á önnur mál.

Kristín Steinsdóttir er gift og á þrjú uppkomin börn. Hún er búsett í Reykjavík.

 


Ritaskrá

  • 2020   Yfir bænum heima
  • 2017   Ekki vera sár
  • 2014   Vonarlandið
  • 2012   Bjarna-Dísa
  • 2010   Ljósa
  • 2009   Hetjur
  • 2006   Hver étur ísbirni?
  • 2006   Á eigin vegum
  • 2005   Rissa vill ekki fljúga
  • 2004   Sólin sest að morgni
  • 2004   Vítahringur: Helgusona saga
  • 2002   Engill í Vesturbænum
  • 2000   Krossgötur
  • 1999   Kleinur og kaffi
  • 1998   Ormurinn
  • 1997   Vestur í bláinn
  • 1995   Abrakadabra
  • 1994   Ármann og blíða
  • 1994   Draugur í sjöunda himni
  • 1992   Draugar vilja ekki dósagos
  • 1991   Fjólubláir dagar
  • 1989   Stjörnur og strákapör
  • 1988   Fallin spýta
  • 1987   Franskbrauð með sultu

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2013  Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir framlag til íslenskra bókmennta
  • 2011  Fjöruverðlaunin. Bókmenntaverðlaun kvenna: Ljósa
  • 2010  Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Ljósa
  • 2008  Sögusteinn, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi: Veitt fyrir feril
  • 2007  Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins
  • 2007  Silfurstjarnan (verðlaun sænksu IBBY samtakanna): Engill í Vesturbænum
  • 2007  Fjöruverðlaunin. Bókmenntaverðlaun kvenna: Á eigin vegum
  • 2004  Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins: Engill í Vesturbænum
  • 2003  Norrænu barnabókaverðlaunin: Engill í vesturbænum
  • 2003  Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur: Engill í vesturbænum
  • 2003  Vorvindar: Viðurkenning Barna og bóka, Íslandsdeildar IBBY: Engill í vesturbænum
  • 1999  Úthlutun úr Bókasafnssjóði höfunda
  • 1998  Bæjarlistamaður Akraness
  • 1992  Viðurkenning Íslandsdeildar IBBY (Börn og bækur): Fjólubláir dagar
  • 1989  Leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur, 3. verðlaun: Randaflugur (ásamt Iðunni Steinsdóttur)
  • 1989  Leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur, 2. verðlaun: Mánablóm (ásamt Iðunni Steinsdóttur)
  • 1987  Íslensku barnabókaverðlaunin: Franskbrauð með sultu
  • 1986  Leikritasamkeppni Ríkisútvarpsins, 1. verðlaun: 19. júní (ásamt Iðunni Steinsdóttur)  

 

Tilnefningar

  • 2008   Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Á eigin vegum
  • 1998   Til Bókmenntaverðlauna Janusar Korzack í Póllandi fyrir Vestur í bláinn

 

Þýðingar

(í vinnslu)

Þýðingar á verkum Kristínar

  • 2017  Hoffnungsland (Anika Lüders-Wolff þýddi á þýsku)
  • 2011  Im Schatten des Vogels (Anika Lüders-Wolff þýddi á þýsku)
  • 2009  Egene Wegen (Tina Flecken þýddi á þýsku)

 

Þýðingar eftir Kristínu

  • 1994  Ursula Wöfel: Fljúgandi stjarna
  • 1984  Irina Korschunow: Trítlarnir á Titringsfjalli
  • 1982  Þjóðsögur og sagnir frá Víetnam

 

Tengt efni