SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ingibjörg Reynisdóttir

Ingibjörg Reynisdóttir er fædd 4. desember 1970.

Ingibjörg er leikkona og rithöfundur. Hún skrifaði ásamt Baldvini Z handritið að kvikmyndinni Óróa (2010) og lék í myndinni sem var sýnd um víða veröld og fékk góða dóma og viðurkenningar. 

Leikrit Ingibjargar sem heitir Móðir mín, dóttir mín var opnunarverk lista- og menningarhátíðarinnar Bjartir dagar í Hafnarfirði 2005. Í leikritinu er skyggnst inn í líf mæðgna þar sem alkóhólismi móðurinnar hefur heltekið líf þeirra.

Ingibjörg ólst upp í Laugarneshverfinu og býr í Reykjavík en hefur áður búið í Kaupmannahöfn þar sem hún lagði stund á leiklist , við Ny Dramaskole, Center of Performing Arts á árunum 1995-1999.

Ingibjörg hefur skrifað tvær unglingabækur (aðra þeirra með dóttur sinni Lovísu Rós) og árið 2012 sendi hún frá sér bók um einsetumanninn Gísla á Uppsölum sem varð feykivinsæl og var í efsta sæti á metsölulista.

Ljósmynd af Ingibjörgu: wift.is


Ritaskrá

  • 2014  Rogastanz
  • 2010  Órói - kvikmyndahandrit (ásamt Baldvini Z)
  • 2009  Gísli á Uppsölum
  • 2008  Rótleysi, rokk og rómantík
  • 2007  Strákarnir með strípurnar (með Lovísu Rós Þórðardóttur)
  • 2005  Móðir mín, dóttir mín (leikrit)