SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Bergrún Íris Sævarsdóttir

Bergrún Íris Sævarsdóttir er fædd árið 1985 og býr í Hafnarfirði ásamt fjölskyldu sinni. Bergrún útskrifaðist með BA gráðu í listfræði úr Háskóla Íslands 2009, lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistaskólanum í Reykjavík vorið 2012 og sótti sumarskóla í barnabókagerð í Anglia Rushkin, Cambridge School of Art.

Bergrún hefur alltaf haft áhuga á barnabókum en sá áhugi fékk byr undir báða vængi þegar hún varð móðir haustið 2009. Hún hefur myndskreytt fjölda barnabóka og námsefni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Fyrsta bók Bergrúnar sem rithöfundur var barnabókin Vinur minn, vindurinn sem kom út hjá Bókabeitunni haustið 2014 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. (sjá vefsíðu Bókabeitunnar)

Bergrún Íris hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín, eins og sjá má á skrá hér til hliðar. Meðal annars hefur hún hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og unglingabóka og Vest-Norrænu barnabókaverðlaunin.


Ritaskrá

  • 2023   Sokkalabbarnir (ásamt Þorvaldi Davíð Kristjánssyni)
  • 2023   Kennarinn sem sneri aftur
  • 2023   Langelstur á bókasafninu
  • 2023   Veikindadagur (ásamt Sigmundi Breiðfjörð)
  • 2021   Kennarinn sem kveikti í
  • 2020   Töfralandið
  • 2020   Viltu vera vinur minn? (endurútgáfa)
  • 2020   Kennarinn sem hvarf sporlaust
  • 2019   Kennarinn sem hvarf
  • 2019   Lang-elstur að eilífu
  • 2019   Hauslausi húsvörðurinn
  • 2018   Lang-elstur í leynifélaginu
  • 2018   Næturdýrin
  • 2017   Lang-elstur í bekknum
  • 2015   Viltu vera vinur minn?
  • 2015   Sjáðu mig sumar
  • 2014   Vinur minn, vindurinn

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2020 Vest Norrænu barnabókaverðlaunin: Lang-elstur að eilífu
  • 2020  Íslensku bókmenntaverðlaunin: Lang-elstur að eilífu
  • 2020  Fjöruverðlaunin - bókmenntaverðlaun kvenna: Kennarinn sem hvarf
  • 2019 Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur: Kennarinn sem hvarf
  • 2016 Vorvindar, viðurkenning IBBY fyrir framlag til barnamenningar

Tilnefningar

  • 2019  Fjöruverðlaun-  bókmenntaverðlaun kvenna: Lang-elstur í leynifélaginu
  • 2018  Fjöruverðlaunin - bókmenntaverðlaun kvenna: Lang-elstur í bekknum
  • 2018  Barnabókaverðlaun Reykjavíkur: Lang-elstur í bekknum
  • 2015  Barnabókaverðlaun Reykjavíkur fyrir myndskreytingar: Viltu vera vinur minn? 
  • 2015  Fjöruverðlaunin - bókmenntaverðlaun kvenna: Vinur minn, vindurinn
  • 2015  Barna- og unglingaverðlaun Norðurlandaráðs: Vinur minn, vindurinn

Heimasíða

http://www.bergruniris.com/