Benný Sif (f. 1970) hefur lokið meistaraprófi í þjóðfræði frá Háskóla Íslands auk diplómanáms í Youth and Community Studies frá Saint Martin´s College og prófi í hagnýtri íslensku. Hún hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2018 fyrir fyrstu skáldsögu sína, Grímu. Nýræktarstyrkir eru veittir árlega til útgáfu á skáldverkum höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og hvetja þá með því til frekari dáða á þeirri braut. Í umsögn dómnefndar segir: „Gríma er söguleg skáldsaga sem segir frá örlögum kvenna í íslensku sjávarþorpi um og eftir miðja tuttugustu öld. Sagan er grípandi, persónusköpun sterk og bygging verksins vel úthugsuð. Textinn er lifandi og skemmtilegur en um leið lýsir höfundur harmrænum atburðum af einstakri næmni. Frásagnargleði og væntumþykja fyrir viðfangsefninu einkenna þessa hrífandi skáldsögu.“ Sama ár sendi Benný frá sér barnabókina Jólasveinarannsóknina. Um þessa sterku innkomu á ritvöllinn segir Benný Sif í viðtali við Austurfrétt:
„Svona af því ég er nýr höfundur og komin á miðjan aldur varð ég bara að byrja með trukki og koma með tvær bækur í ár,“ segir Benný og hlær. „Ég hef alltaf ætlað mér að skrifa en var ekki komin á þann stað fyrr en núna. Ég á fimm börn og fjögur fyrstu eru fædd á tæpum sex árum þannig að það var nóg að gera á stóru heimili. Þegar þau fóru að stálpast eignaðist ég eitt í viðbót og fór svo í þjóðfræði í Háskóla Íslands þar sem ég tók bæði grunn- og meistaragráðu. Eftir það sá ég fyrir mér að fá vinnu við fagið en þegar það gekk brösulega ákvað ég að setjast niður og gera það sem mig hafði alltaf langað, þannig að stundum þarf eitthvað svoleiðis til þess að maður hundskist í verkið!“
Benný er Eskfirðingur að upplagi og í hjartanu, en býr nú í Kópavogi ásamt manni sínum og fimm fullorðnum og hálffullorðnum börnum. Hún hefur alla tíð verið mikill bókaormur og lestrarhestur og hefur lesið miklu fleiri bækur en hún hefur skrifað. Hún heldur því fram að það sé mannbætandi að lesa og finnst þess vegna að allir ættu að taka sér bók í hönd og gleyma sér við lestur. Helst alla daga! segir á vef Bókabeitunnar.
Mynd: Bókabeitan
Benný Sif Ísleifsdóttir
- 2020 Hansdætur
- 2019 Álfarannsóknin
- 2018 Gríma
- 2018 Jólasveinarannsóknin
- 2020 Íslensku hljóðbókaverðlaunin: Gríma
- 2018 Nýræktarstyrkur: Gríma