SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sigrún Eldjárn

Sigrún Eldjárn er fædd 3. maí 1954 í Reykjavík.

Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1974 og fór að því loknu í Myndlistar- og Handíðaskóla Íslands og útskrifaðist þaðan úr grafíkdeild 1977. Árið 1978 dvaldi hún um tíma í Póllandi sem gestanemandi við Listaakademíurnar í Varsjá og Kraká.

Sigrún hefur starfað sem myndlistarmaður frá 1978. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum bæði hérlendis og erlendis, s.s. á Norðurlöndunum, í Póllandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, S-Kóreu, Taiwan og Japan. Verk hennar eru í eigu fjölmargra opinberra safna og stofnana.

Sigrún hefur sent frá sér fjölda bóka fyrir börn, en fyrsta bók hennar, Allt í plati, kom út árið 1980. Sigrún myndskreytir allar sínar bækur sjálf en hún hefur auk þess myndskreytt fjölda bóka annarra höfunda. Má þar nefna verk eftir Guðrúnu Helgadóttur, Magneu frá Kleifum og Þórarinn Eldjárn. Sigrún hefur einnig skrifað sjónvarpshandrit fyrir RÚV.

Sigrún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín, m.a. Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í þrígang, Menningarverðlaun VISA, Sögustein - barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi og verið tilnefnd til H.C. Andersen verðlaunanna og Norrænu barnabókaverðlaunanna.

Sigrún Eldjárn býr í Reykjavík.


Ritaskrá

  • 2023  Fjaðrafok í mýrinni
  • 2022  Ófreskjan í mýrinni
  • 2022  Umskiptingurinn
  • 2022  Kuggur: Kátt er í Köben
  • 2021  Rauð viðvörun: Jólin eru á leiðinni
  • 2020  Gullfossinn: Framtíðarsaga
  • 2019  Sigurfljóð í grænum hvelli!
  • 2019  Kopareggið: Framtíðarsaga
  • 2018  Silfurlykillinn: Framtíðarsaga
  • 2017  Áfram Sigurfljóð
  • 2017  Afmælisgjöfin
  • 2016  Sigurfljóð hjálpar öllum
  • 2016  Hoppað í París
  • 2016  Rassaköst í Róm
  • 2015  Leyniturninn á Skuggaskeri
  • 2015  Tölvuskrímslið
  • 2014  Ferðaflækur
  • 2014  Listahátíð
  • 2014  Fuglaþrugl og naflakrafl
  • 2014  Draugagangur á Skuggaskeri
  • 2013  Strokubörnin á Skuggaskeri
  • 2012  Listasafnið
  • 2012  Jólakrakkar
  • 2011  Náttúrugripasafnið
  • 2010  Forngripasafnið
  • 2009  Kuggur: Blómkál
  • 2009  Kuggur: Útilega
  • 2009  Finnur finnur rúsínu
  • 2008  Kuggur: Draugagangur
  • 2008  Eyja Sólfuglsins
  • 2008  Kuggur: Gleðilegt sumar!
  • 2007  Gælur, fælur og þvælur
  • 2007  Eyja glerfisksins
  • 2006  Stanleyhamarsheimt
  • 2006  Gula sendibréfið
  • 2006  Eyja gullormsins
  • 2005  Jólaleg jól
  • 2005  Kuggur: Þorrablót
  • 2005  Steinhjartað
  • 2004  Frosnu tærnar
  • 2004  Kuggur: Prinsinn og drekinn
  • 2004  Kuggur: Í sveitinni
  • 2004  Kuggur: Geimferð
  • 2004  Kuggur: Nýir vinir
  • 2003  Týndu augun
  • 2003  Snorra saga (með Þórarni Eldjárn)
  • 2002  Draugasúpan    
  • 2001  Geimeðlueggin
  • 2000  Drekastappan
  • 1999  Teitur í heimi gulu dýranna
  • 1999  Að skrifa barnabækur: Greinar
  • 1998  Málfríður og tölvuskrímslið
  • 1998  Teitur tímaflakkari
  • 1998  Línuteikning og leikur: Greinar
  • 1997  Kynlegur kvistur á grænni grein
  • 1996  Beinagrind með gúmmíhanska
  • 1995  Skordýraþjónusta Málfríðar
  • 1994  Syngjandi beinagrind
  • 1994  Talnakver
  • 1993  Beinagrindin
  • 1992  Sól skín á krakka
  • 1991  Stjörnustrákur
  • 1990  Axlabönd og bláberjasaft
  • 1989  Kuggur, Mosi og mæðgurnar
  • 1988  Kuggur til sjávar og sveita
  • 1987  Kuggur og fleiri fyrirbæri
  • 1986  Bétveir - Bétveir
  • 1984  Langafi prakkari
  • 1983  Langafi drullumallar
  • 1981  Eins og í sögu
  • 1981  Gleymmérei
  • 1980  Allt í plati

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2018  Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Silfurlykilinn
  • 2011  Íslensku bjartsýnisverðlaunin
  • 2008  Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til íslenskrar barnamenningar
  • 2007  Dimmalimm, íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir Gælur, þvælur og fælur
  • 2007  Sögusteinn, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi og Glitnis, fyrir feril
  • 2006  Vorvindar IBBY (sem mynd- og rithöfundur)
  • 2004  Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir Frosnu tærnar (sem besta barnabókin)
  • 1999  Alþjóðlegur heiðurslisti IBBY fyrir Málfríður og tölvuskrímslið
  • 1999  Menningarverðlaun VISA fyrir myndlist og barnamenningu
  • 1998  Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir Halastjörnuna (ásamt Þórarni Eldjárn)
  • 1996  Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins
  • 1994  Heiðurslaun Brunabótafélags Íslands
  • 1992  Barnabókaverðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir Óðfluga (ásamt Þórarni Eldjárn)
  • 1987  Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir Bétveir, bétveir
  • 1989  Verðlaun fyrir útilistaverk í Laugardal
  • 1988  Viðurkenning Barnabókaráðs IBBY

 

Tilnefningar

  • 2022  Til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Ófreskjan í mýrinni
  • 2021  Til Íslensku þýðingarverðlaunanna fyrir Öll með tölu eftir Kristin Roskifte
  • 2019  Til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Silfurlykilinn 
  • 2013  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Strokubörnin á Skuggaskeri
  • 2013  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Strokubörnin á Skuggaskeri
  • 2005  Til Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna fyrir Frosnu tærnar
  • 2003  Til Norrænu barnabókaverðlaunanna (fyrir höfundarverk sitt)
  • 1999  Til Norrænu barnabókaverðlaunanna (fyrir myndskreytingar)
  • 1998  Til H.C. Andersen-verðlaunanna (sem rithöfundur og myndlistamaður)
  • 1998  Til Norrænu barnabókaverðlaunanna (fyrir myndskreytingar)

 

Þýðingar

(í vinnslu)

  • 2019  Sølvnøglen : en fremtidshistorie (Kim Lembek þýddi á dönsku)
  • 2014  Óbodnir gestir (Hørdís Heindriksdóttir þýddi á færeysku)

 

Tengt efni