SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sigrún Björnsdóttir

Sigrún Björnsdóttir fæddist á Seyðisfirði 19. september 1956.

Sigrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1977 og útskrifaðist með meistarapróf í samfélags- og fjölmiðlafræðum frá Háskólanum í Hróarskeldu 1987. Þá hefur hún lokið meistaraprófi í  upplýsingatækni og netmiðlun. Sigrún stundar nú nám í ritlist við HÍ.

Sigrún vann sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu frá árinu 1987-1999 og gerði jafnframt fléttuþætti og fréttaskýringar. Hún hefur starfað sem háskólakennari, sérfræðingur og upplýsingafulltrúi, m.a. hjá Íslenskri erfðagreiningu, á Norðurlandaskrifstofu og hjá Reykjavíkurborg. Þá hefur hún unnið sem fréttaritari fyrir norrænu fréttastofuna Ritzau, sem  þýðandi og greinahöfundur. 

Sigrún hefur skrifað ljóð frá unga aldri og birtust þau fyrstu á níunda áratug síðustu aldar, m.a. í tímaritinu Teningi og blaðinu Pavillionen sem gefið var út í Kaupmannahöfn. Hún hefur gefið út þrjár ljóðabækur og þá hafa birst eftir hana ljóð á ljod.is, á ljóðavef Jónasar Hallgrímssonar og í ljóðasöfnum og tímaritum, m.a. í Perlum úr ljóðum íslenskra kvenna sem Forlagið gaf út.

Sigrún er gift Garðari Garðarssyni og eiga þau tvær dætur; Eddu Ýri f. 1976 og Sögu f. 1987 og fimm barnabörn.

 


Ritaskrá

  • 2023  Veltigrjót
  • 2020  Loftskeyti
  • 2014  Höfuðbending
  • 2008  Blóðeyjar
  • 2002  Næturfæðing