SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ragna Sigurðardóttir

Ragna Sigurðardóttir (Ragnheiður Sigurðardóttir) er fædd í Reykjavík 10. ágúst 1962.

Hún lærði myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og hélt síðan eftir útskrift í framhaldsnám til Hollands. Um skeið bjó hún einnig í Danmörku en er nú flutt til Íslands þar sem hún starfar sem rithöfundur og myndlistarmaður.

Ragna gaf út kverið Stefnumót árið 1987. Tveimur árum síðar kom út önnur bók, Fallegri en flugeldar og aftur liðu tvö ár fram að þriðju bók hennar, 27 herbergi. Í tveimur þessara þriggja bóka eru einnig myndverk eftir höfund.

Árið 1993 kom út skáldsagan Borg og vakti hún talsverða athygli. Hún var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Síðan hefur Ragna sent frá sér fleiri skáldsögur og smásagnasafn Hún hefur einnig ritað greinar í blöð og tímarit og þýtt fjölda skáldsagna á íslensku.

Ragna býr í Bessastaðahreppi.

 


Ritaskrá

  • 2022  Þetta rauða, það er ástin
  • 2019  Vetrargulrætur
  • 2016  Vinkonur
  • 2011  Bónusstelpan
  • 2009  Hið fullkomna landslag
  • 2000  Strengir
  • 1997  Skot
  • 1994  Apríkósur og laukar: Smásaga í Tundurdufl
  • 1993  Borg
  • 1991  27 herbergi
  • 1989  Fallegri en flugeldar
  • 1987  Stefnumót

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2016  Ísnálin, fyrir bestu þýddu glæpasöguna: Konan í myrkrinu

 

Tilnefningar

  • 1993  Til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta fyrir Borg

 

Þýðingar

(í vinnslu)

Þýðingar eftir Rögnu:

  • 2021  Ashley Audrain: Grunur
  • 2019  Simone van de Vlugt: Þar sem ekkert ógnar þér
  • 2019  Lee Child: Engin málamiðlun

 

Tengt efni