SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jónína Leósdóttir

Jónína Leósdóttir er fædd í Reykjavík 16. maí 1954.

Jónína lauk stúdentsprófi úr fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík og BA-prófi í ensku og bókmenntafræðum frá Háskóla Íslands. Einnig stundaði hún nám við Essex-háskóla í Bretlandi.

Jónína hefur skrifað æviminningabækur, skáldsögur, barna- og unglingabækur og fjölda smásagna. Leikrit eftir Jónínu hafa verið sýnd í Sjónvarpinu og verk eftir hana verið flutt í Útvarpsleikhúsinu. Auk þess var leikrit hennar, Leyndarmál, flutt í þremur framhaldsskólum og stuttir leikþættir eftir Jónínu hafa verið sýndir vítt og breitt um landið.

Fyrsta frumsamda bók Jónínu var Guð almáttugur hjálpi þér, ævisaga séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar, sem út kom 1988. Árið 1993 kom unglingabókin Sundur og saman en fyrsta skáldsaga Jónínu fyrir fullorðna, Þríleikur, kom út 1994. Árið 2013 sendi Jónína frá sér bókina Við Jóhanna, sem er ástarsaga hennar og Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, og hlaut hún mjög góðar viðtökur.

Í janúar 2008 hlaut Jónína Ljóðstaf Jóns úr Vör, verðlaun í ljóðasamkeppni á vegum Kópavogsbæjar. Einnig hefur hún hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir smásögur og leikverk og árið 2009 hlaut hún viðurkenningu IBBY á Íslandi fyrir skrif sín fyrir unglinga.

Jónína starfaði sem blaðamaður og ritstjóri um tveggja áratuga skeið og þýddi skáldsögur og bækur af öðrum toga.

Frá árinu 2006 hefur hún unnið alfarið við bókaskrif. Árið 2016 kom fyrsta glæpasaga Jónínu út, Konan í blokkinni, og var hún tilnefnd til íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans. Síðan hafa komið út fleiri bækur í sama bókaflokki.

Jónína á einn son, hún býr í Reykjavík með eiginkonu sinni Jóhönnu Sigurðardóttur.


Ritaskrá

  • 2023  Þvingun
  • 2022  Varnarlaus
  • 2021  Launsátur
  • 2020  Andlitslausa konan
  • 2019  Barnið sem hrópaði í hljóði
  • 2018  Óvelkomni maðurinn
  • 2017  Stúlkan sem enginn saknaði    
  • 2016  Konan í blokkinni    
  • 2014  Bara ef …     
  • 2013  Við Jóhanna     
  • 2012  Léttir    
  • 2011  Upp á líf og dauða    
  • 2010  Allt fínt … en þú?     
  • 2010  Elskar mig, elskar mig ekki     
  • 2009  Ég & þú    
  • 2008  Svart & hvítt    
  • 2008  Miðbæjarmynd  
  • 2007 Talað út um lífið og tilveruna (úrval pistla úr Nýju lífi)
  • 2007  Kossar & ólífur    
  • 1994  Þríleikur    
  • 1993  Sundur og saman    
  • 1992  Rósumál. Líf og störf Rósu Ingólfsdóttur
  • 1988  Guð almáttugur hjálpi þér - æviminningar séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2009  Vorvindar – viðurkenning IBBY á Íslandi fyrir skrif fyrir unglinga
  • 2008  Ljóðstafur Jóns úr Vör fyrir ljóðið „Miðbæjarmynd“
  • 2007  Smásagnasamkeppni Nýs lífs, 1. verðlaun fyrir „Leiðarlok“
  • 2006  Sakamál á svið, leikritasamkeppni Borgarleikhússins, leikverkið Engu að tapavalið valið í sex verka úrslit 
  • 1997  Leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur, 3. verðlaun fyrir Sælustundir
  • 1995  Leikritasamkeppni Sjálfsbjargar og Sambands íslenskra sveitarfélaga, 2. verðlaun fyrir Að vera eða vera ekki

 

Tilnefningar

(í vinnslu)

  • 2016  Til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna, fyrir Konan í blokkinni

 

Þýðingar

(í vinnslu)

 

Tengt efni