SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ingunn Snædal

Ingunn Snædal er fædd á Egilsstöðum 10. ágúst 1971 og ólst upp á Jökuldal.

Hún lauk B.ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1996 og lagði stund á írskunám við háskólann í Galway á Írlandi 1996-97. Árið 2006 hóf hún nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands. Ingunn bjó í Írlandi frá 1996-98, á Costa Rica og í Mexíkó 1998-99, á Spáni 2001-02 og sumarlangt í Danmörku 1998. Á Íslandi hefur hún kennt í grunnskólum auk þess að vera prófarkalesari, ráðskona í vegavinnu, bensínafgreiðslumaður, þjónustustúlka, sendisveinn, keyra út póst, vinna á síldarvertíð, semja auglýsingar og vera einkakennari.

Fyrsta ljóðabók Ingunnar, Á heitu malbiki, kom út hjá höfundi 1995. Önnur bók hennar, Guðlausir menn – hugleiðingar um jökulvatn og ást, kom út 2006 hjá bókaforlaginu Bjarti. Bókin fékk Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þriðja ljóðabók Ingunnar, Í fjarveru trjáa – vegaljóð, kom út sumarið 2008. Ljóð eftir hana hafa einnig birst í nokkrum ljóðasöfnum, m.a. Ljóð Austfirðinga 1999, Skáldaval IV 2007, tímaritinu Andblæ 1996, Nema ljóð og sögur 1996, Huldumál – hugverk austfirskra kvenna 2001, Wortlaut Island: Isländische Gegenwartsliteratur 2000, Pilot: Debutantologi í Noregi og víðar. Ingunn hefur ennfremur þýtt heilmikið.

Ingunn er gift og á tvö börn. Hún býr austur á Fljótsdalshéraði.


Ritaskrá

  • 2015  Ljóðasafn: 1995-2015
  • 2011  Það sem ég hefði átt að segja næst: Þráhyggjusögur
  • 2009  Komin til að vera, nóttin
  • 2008  Í fjarveru trjáa: Vegaljóð
  • 2006  Guðlausir menn – hugleiðingar um jökulvatn og ást
  • 1995  Á heitu malbiki

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2010  Fjöruverðlaunin fyrir Komin til að vera, nóttin
  • 2006  Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir Guðlausir menn - hugleiðingar um jökulvatn og ást

 

Tilnefningar

  • 2023  Til Ísnálarinnar fyrir þýðing á Upplausn eftir Sara Blædel og Mads Peder Nordbo
  • 2017  Til Ísnálarinnar fyrir þýðingu á Hjónin við hliðina eftir Shari Lapena
  • 2006  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Guðlausir menn - hugleiðingar um jökulvatn og ást

 

Þýðingar

(í vinnslu)

  • 2022  Upplausn eftir Sara Blædel og Mads Peder Nordbo
  • 2022  Skandar og einhyrningaþjófurinn eftir A. F. Steadman
  • 2019  Hnitmiðuð kínversk-ensk orðabók fyrir elskendur eftir Xiaolu Guo
  • 2019  Handbók fyrir ofurhetjur - vargarnir koma eftir Elias og Agnes Åhlund
  • 2019  Eldraunin eftir Jörn Lier Horst
  • 2019  Blóðhefnd eftir Angela Marsons
  • 2018  Uppruni eftir Dan Brown
  • 2018  Krítarmaðurinn eftir C. J. Tudor
  • 2018  Flúraða konan eftir Mads Peder Nordbo
  • 2018  Óboðinn gestur eftir Shara Lapena
  • 2018  Myrkrið bíður eftir Angela Marsons
  • 2018  Týnda systirin eftir Angela Marsons
  • 2018  Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu eftir Jenny Colgan
  • 2018  Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu eftir Jenny Colgan
  • 2017  Litla bakaríið við Strandgötu eftir Jenny Colgan
  • 2017  Þögult óp eftir Angela Marsons
  • 2017  Einu sinni var í austri, uppvaxtarsaga eftir Xiaolu Guo
  • 2017  Grænmetisætan eftir Han Kang
  • 2017  Ljótur leikur eftir Angela Marsons
  • 2017  Talin af eftir Sara Blædel
  • 2017  Örvænting eftir B.A. Paris
  • 2017  Týndu stúlkurnar eftir Angela Marsons
  • 2017  Drekkingarhylur eftir Paula Hawkins
  • 2017  Litla vínbókin. Sérfræðingur á 24 tímum eftir Jancis Robinson
  • 2017  Hús tveggja fjölskyldna eftir Linda Cohen Loigman
  • 2017  Litla bókabúðin í hálöndunum eftir Jenny Colgan
  • 2016  Allt eða ekkert eftir Nicola Yoon
  • 2017-18  Handbók fyrir ofurhetjur, I-III eftir Elias & Agnes Våhlund
  • 2016  Stúlkurnar eftir Emma Cline
  • 2016  Á meðan ég lokaði augunum eftir Linda Green
  • 2016  Dauðaslóðin eftir Sara Blædel
  • 2016  Hjónin við hliðina eftir Shari Lapena
  • 2016  Bak við luktar dyr eftir B. A. Paris
  • 2016  Töfraskógurinn, fegrum lífið með litumT eftir Johanna Basford
  • 2016  Skrímslið kemur eftir Patrick Ness
  • 2016  Harry Potter og bölvun barnsins eftir J. K. Rowling
  • 2015  Leynigarður, fegrum lífið með litum eftir Johanna Basford
  • 2014  Beðið fyrir brottnumdum eftir Jennifer Clement
  • 2014  Hinn litlausi Tsukuru Tazaki og pílagrímsár hans eftir Haruki Murakami 
  • 2013  Inferno eftir Dan Brown (ásamt Arnari Matthíassyni)
  • 2013  Árið sem tvær sekúndur bættust við tímann eftir Rachel Joyce
  • 2012  Hlaupið í skarðið eftir J. K Rawling (ásamt Arnari Matthíassyni)
  • 2012  Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry eftir Rachel Joyce
  • 2011  Skrautleg sæskrímsli og aðrar lystisemdir eftir Matthew Morgan, David Sindan & Guy MacDonald
  • 2010  Einvígi varúlfs og dreka eftir Matthew Morgan, David Sindan & Guy MacDonald
  • 2010  Týnda táknið eftir Dan Brown (ásamt fleiri þýðendum)
  • 2010  Undir fögru skinni eftir Rebecca James
  • 2008  Síðasta uppgötvun Einsteins eftir Mark Alpert

 

Tengt efni