SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Helga Pálsdóttir frá Grjótá

Helga Pálsdóttir var fædd 1877 og lést á tíræðisaldri 1973. Hún naut varla nokkurrar skólagöngu en hafði mikla unun af skáldskap. Helga var vinnukona, lengst af á Grjótá í Fljótshlíð, ógift og barnlaus og þjónaði fjórum ættliðum. Allmikið safn kvæða liggur eftir hana.

Helga orti mest erfiljóð og tækifærisvísur. Kvæði hennar eru í anda rótgróinnar skáldskaparhefðar, bæði varðandi efnistök og form. Hún beitir leikandi fyrir sig fjölbreyttum bragarháttum, s.s. braghendum og hringhendum:

Til Helgu var leitað með alls konar tækifæriskveðskap. Helstu þemu í kveðskap hennar eru trú, náttúra og ættjörð. Árið sem konur fengu kosningarétt orti hún heillangt kvæði sem hún nefnir Konuvísur þar sem húsfreyjur í Fljótshlíð (ekki vinnukonur) eru nafngreindar og kostir þeirra tíundaðir.

Helga yrkir ekki margt um sjálfa sig en þó má túlka sum kvæða hennar svo að líf hennar hafi verið dapurlegt á stundum og hún beðið skipbrot í ástamálum..

Árið 2016 kom út úrval og heildarsafn skáldskapar Helgu með formálsorðum eftir ritnefndarkonurnar Hörpu Rún Kristjánsdóttur og Ástu Þorbjörnsdóttur á Grjótá, sem varpa ljósi á ævi og skáldskap Helgu. Án framtaks þessara kvenna hefðu kvæði Helgu endað í glatkistunni eins og oft vill verða með kveðskap og skrif alþýðufólks á fyrri öldum, ekki síst kvenna.

Konuvísur og Þakkarbréf í Kvæða- og vísnasafni Árnesinga

Umfjöllun um Ljóð og líf Helgu Pálsdóttur á Grjótá

Anna Þ. Ingólfsdóttir. Tvær skáldkonur. Són, 13. árg. 2015


Ritaskrá

  • 2015 Ljóð og lif Helgu Pálsdóttur á Grjótá

Tengt efni