SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Eva Mínervudóttir

Guðrún Eva Mínervudóttir er fædd í Reykjavík 17. mars 1976.

Guðrún Eva stundaði nám í ýmsum framhaldsskólum á árunum 1993 til 1996 og vann jafnframt sem barþjónn og við framreiðslu á veitingahúsum. Hún hóf nám í heimspeki við Háskóla Íslands 1997 og stundaði það með hléum þar til hún lauk prófi 2007. Hún var blaðamaður í lausamennsku hjá Helgarpóstinum 1996-1997.

Fyrsta bók Guðrúnar Evu, Sóley sólufegri, kom út í mjög takmörkuðu upplagi árið 1998 en sama ár gaf Bjartur út eftir hana smásagnasafnið Á meðan hann horfir á þig ertu María mey og vakti það mikla athygli. Síðan hafa margar skáldsögur bæst í hópinn, þær fyrstu hjá Bjarti en sú síðasta hjá Máli og menningu, auk ljóðabókar og heimspekilegra smásagna fyrir börn sem Námsgagnastofnun gaf út. Guðrún Eva hefur einnig þýtt tvær skáldsögur sem komu út hjá Bjarti.

Guðrún Eva hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2012 fyrir skáldsögu sína Allt með kossi vekur. Skáldsagan Fyrirlestur um hamingjuna var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2000 og Sagan af sjóreknu píanóunum til Menningarverðlauna DV í bókmenntum 2002. Guðrún Eva hlaut síðan Menningarverðlaun DV 2005 fyrir skáldsögu sína, Yosoy. Kvikmyndafyrirtækið Pegasus hefur keypt kvikmyndaréttinn að bókinni.

Guðrún Eva Mínervudóttir býr í Hveragerði með eiginmanni sínum og dóttur.


Ritaskrá

  • 2022  Útsýni
  • 2019  Aðferðir til að lifa af
  • 2018  Ástin, Texas
  • 2016  Skegg Raspútíns
  • 2011  Allt með kossi vekur
  • 2008  Skaparinn
  • 2005  Yosoy: Af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss
  • 2002  Albúm
  • 2002  Sagan af sjóreknu píanóunum
  • 2001  Valur: heimspekilegar smásögur
  • 2002  Geitungagildrar - ópr. útvarpsleikrit
  • 2000  Á brún alls fagnaðar: ljóð handa Hrafni
  • 2000  Fyrirlestur um hamingjuna
  • 1999  Ljúlí ljúlí
  • 1998  Á meðan hann horfir á þig ertu María mey

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2020  Viðurkenning Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins
  • 2012  Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Allt með kossi vekur
  • 2006  Menningarverðlaun DV í bókmenntum fyrir Yosoy

 

Tilnefningar

  • 2021  Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Aðferðir til að lifa af
  • 2019  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Aðferðir til að lifa af
  • 2016  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Skegg Raspútíns
  • 2014  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Englaryk
  • 2008  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Skaparinn
  • 2000  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Fyrirlestur um hamingjuna 

 

Þýðingar

(í vinnslu)

Þýðingar á verkum Guðrúnar Evu:

  • 2022  Veje til at overleve (Nanna Kalkar þýddi á dönsku)
  • 2022  Austin från Texas (John Swedenmark þýddi á sænsku)
  • 2021  When his eyes are on you, you are the Virgin Mary - bókarkafli (Megan Alica Matich þýddi á ensku)
  • 2020  Unter Engeln (Anita Lüters-Wolff þýddi á þýsku)
  • 2017  Srashtavu (Abraham þýddi á malayalam)
  • 2015  Album (Catherine Eyjólfsson þýddi á frönsku)
  • 2014  Le créateur (Catherine Eyjólfsson þýddi á frönsku)
  • 2014  Alles beginnt mit einem Kuss (Anita Lüters-Wolff þýddi á þýsku)
  • 2013  Tutto si risveglia con y bacio (Silvia Cosimini þýddi á ítölsku)
  • 2012  Yosoy. Skrækteatret ved verdens ende (Nanna Kalkar þýddi á dönsku)
  • 2012  The creator (Sarah Bowen þýddi á ensku)
  • 2011  Der Schöpfter (Tina Flecken þýddi á þýsku)
  • 2010  Nukentekijä (Juha Peura þýddi á finnsku)
  • 2010  Il creatore (Silvia Cosimini þýddi á ítölsku)
  • 2008  Pendant qu’il te regarde tu es la Vierge Marie (Catherine Eyjólfsson þýddi á frönsku)
  • 2007  Yosoy (Silvia Cosimini þýddi á ítölsku)

 

Þýðingar Guðrúnar Evu:

  • 2014  Rhidian Brook: Eftirköstin
  • 2006  Sue Monk Kidd: Leyndardómur býflugnanna
  • 2003  Zizou Corder: Ljónadrengurinn

 

Heimasíða

http://minervudottir.com/

Tengt efni