SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Hannesdóttir

Guðrún Hannesdóttir fæddist þann 18. júní árið 1944.

Hún lauk stúdentsprófi frá MR árið 1964, nam listasögu við háskólann í Lundi frá 1968-70 og lauk BA-prófi í bókasafnsfræði frá Háskóla Íslands árið 1979. Guðrún starfaði lengst af sem bókasafnsfræðingur og hafði umsjón með bókasafni Myndlistarskólans í Reykjavík.

Guðrún sendi frá sér bókina Gamlar vísur handa nýjum börnum árið 1994, en þar safnaði hún saman vísum fyrir börn og myndskreytti. Fleiri gamlar vísur handa nýjum börnum komu út ári seinna og fleiri barnabækur sendi Guðrún frá sér áður en hún sneri sér að ljóðlistinni.

Fyrsta ljóðbók Guðrúnar var Fléttur sem kom út árið 2008 og síðan hefur hún sent frá sér fjölda ljóðabóka.

Guðrún hefur auk þess sýnt myndir sínar á sam- og einkasýningum hér á landi og víða erlendis.

Guðrún sat lengi vel í stjórn samtakanna Barna og bóka, Íslandsdeildar IBBY-samtakanna, sem og í ritstjórn tímaritsins Börn og menning, sem samtökin gefa út. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir bæði skrif sín og myndskreytingar, þá helst Íslensku barnabókaverðlaunin ásamt Sigrúnu Helgadóttur árið 1996 fyrir Risann þjófótta og skyrfjallið, sem Guðrún myndskreytti; og Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2007 fyrir ljóðið „Offors.“

Finna má umfjöllun um nokkur ljóð eftir Guðrúnu í grein Bergljótar Soffíu Kristjánsdóttur „Í landslagi allra lófa" sem birtist í  ritinu Hugraun. Nútímabókmenntir og hugræn fræði.

Guðrún er búsett í Reykjavík.


Ritaskrá

Ljóðabækur

  • 2022 Fingramál
  • 2020 Spegilsjónir
  • 2018 Þessa heims 
  • 2016 Skin
  • 2015 Humátt
  • 2014 Slitur úr orðabók fugla
  • 2012 Teikn
  • 2010 Staðir
  • 2007 Fléttur

 

Barnabækur

  • 2021 Sagan um Pomperípossu með langa nefið
  • 2006 Gormur: saga um tólf litla ánamaðka
  • 2003 Hvar?
  • 2001 Einhyrningurinn
  • 2001 Sagan um Pomperipossu með langa nefið
  • 1998 Kerlingin vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn
  • 1997 Sagan af skessunni sem leiddist
  • 1994 Gamlar vísur handa nýjum börnum (ritstj. og myndskreyting)

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2021  Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir Dyrnar eftir Mögdu Sazbó
  • 2007  Ljóðstafur Jóns úr Vör fyrir „Offors“.
  • 2004  Ljóðstafur Jóns úr Vör, sérstök viðurkenning fyrir ljóðið „Þar“.
  • 1998  Heiðurslisti IBBY-samtakanna á alþjóðaráðstefnu í Dehli fyrir Risinn þjófótti og skyrfjallið.
  • 1996  Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Risinn þjófótti og skyrfjallið.
  • 1994  Viðurkenning Íslandsdeildar IBBY-samtakanna fyrir Gamlar vísur handa nýjum börnum.

 

Tilnefningar

  • 2016 Til Fjöruverðlaunanna fyrir Humátt

 

Þýðingar

  • 2020  Magda Szabó: Dyrnar

 

Tengt efni