SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Brynhildur Þórarinsdóttir

Brynhildur Þórarinsdóttir er fædd í Reykjavík 27. ágúst 1970.

Brynhildur lauk stúdentsprófi frá M.R. 1990, B.A. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1995 og M.A. prófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla 2004. Ári síðar lauk hún kennsluréttindanámi við Háskólann á Akureyri.

Milli prófa starfaði Brynhildur sem blaðamaður og pistlahöfundur, bæði fyrir útvarp og prentmiðla. Hún var einn umsjónarmanna Þjóðbrautarinnar á Bylgjunni og ritstýrði meðal annars Vinnunni, tímariti Alþýðusambands Íslands, og Tímariti Máls og menningar.

Brynhildur er núna dósent í íslensku við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún hefur verið formaður SÍUNG og er nú í forsvari fyrir Barnabókasetur, rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við HA.

Brynhildur vann til fyrstu verðlauna í smásagnasamkeppni Samtaka móðurmálskennara 1997 fyrir söguna Áfram Óli. Sagan kom út í samnefndu smásagnasafni 1998. Síðan hefur Brynhildur sent frá sér nokkrar endursagnir fyrir börn á Íslendingasögum auk skáldsagna fyrir börn og unglinga. Fyrir eina þeirra, Leyndardómur ljónsins, fékk hún Íslensku barnabókaverðlaunin 2004.

Brynhildur hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin 2007 fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögunum Njálu, Eglu og Laxdælu. Brynhildur heldur úti vefnum www.islendingasogur.is um efni sagnanna, en hefur einnig sent frá sér skólaútgáfur af Íslendingasögum fyrir íslenskan og enskan markað.

Auk útgefinna bóka hafa birst smásögur og greinar eftir Brynhildi í safnritum og tímaritum.

Brynhildur býr á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni og á þrjá bókaorma í grunnskóla. Hún var bæjarlistamaður Akureyrar 2006-2007.


Ritaskrá

  • 2023  Smáralindar-Móri
  • 2022  Dularfulla hjólahvarfið
  • 2020  Dularfulla símahvarfið
  • 2019  Ungfrú fótbolti 
  • 2017  Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir
  • 2016  Warriors of Honour (Oxford University Press)
  • 2015  Njálssona saga og Kára. Brennu-Njáls saga seinni hluti (Námsgagnastofnun)
  • 2015  Hallgerðar saga og Gunnars. Brennu-Njáls saga fyrri hluti (Námsgagnastofnun)
  • 2014  Egils saga (Námsgagnastofnun)
  • 2012  Blávatnsormurinn
  • 2011  Óskabarn : bókin um Jón Sigurðsson (Auk þess samnefnd sýning í Þjóðmenningarhúsinu)
  • 2009  Gásagátan: spennusaga frá 13. öld
  • 2008  Nonni og Selma: Fjör í fríinu
  • 2007  Nonni og Selma: Fjör í fyrsta bekk
  • 2006  Laxdæla
  • 2004  Egla
  • 2004  Leyndardómur ljónsins
  • 2002  Lúsastríðið
  • 2002  Njála

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2007  Norrænu barnabókaverðlaunin: Njála, Egla og Laxdæla
  • 2006  Bæjarlistamaður á Akureyri
  • 2004  Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Leyndardóm ljónsins
  • 2003  Vorvindar IBBY: Njála
  • 1997  Fyrstu verðlaun í smásagnasamkeppni Félags móðurmálskennara fyrir ,,Áfram Óli"  

 

Tilnefningar

  • 2018  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir

 

Tengt efni