SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Lilja Björnsdóttir

Lilja Björnsdóttir kenndi sig gjarna við Þingeyri. Hún fæddist á Kirkjubóki á Bæjarnesi á Barðaströnd 9. apríl 1894. Foreldrar hennar voru Björn Jónsson bóndi þar og Vigdís Samúelsdóttir. Árið 1895 flutti fjölskyldan að Hrauni í Keldudal í Dýrafirði.

Lilja giftist Jóni Erlendssyni sjómanni og hófu þau búskap á Þingeyri. Þar bjuggu þau í nær þrjátíu ár. Síðan fluttu þau til Reykjavíkur og þar dó Jón árið 1948. Þau eignuðust átta börn og lifðu sex þeirra: Ingibjörg, Hreiðar, Úlfljótur, Bjarni, Jóhannes og Gíslína.

Lilja byrjaði ung að yrkja vísur og kvæði en fyrsta bók hennar kom út árið 1935 á Ísafirði. Hún kostaði sjálf útgáfuna og vegna fjárhagsörðugleika varð upplagið mjög takmarkað.  Önnur bók hennar kom út 1948 og varð einnig vinsæl og loks kom sú  þriðja út 1952.

Lilja andaðist á Hrafnistu 20. september árið 1971.

Heimild: Tímarit.is


Ritaskrá

  • 1952  Liljublöð
  • 1948  Vökudraumar: Ljóð
  • 1935  Augnabliksmyndir