SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Anna Margrét Björnsson

Anna Margrét Björnsson fæddist í Stokkhólmi 24. mars árið 1972.

Foreldrar hennar eru Sigrún Dungal og Sveinn Björnsson sendiherra. Anna Margrét ólst upp í Stokkhólmi, Bonn og London þar sem faðir hennar gegndi ýmsum störfum fyrir Íslenska sendiráðið. Fjölskyldan fluttist síðan til Íslands árið 1987.

Anna Margrét hefur starfað sem blaðamaður frá árinu 2000 og hefur hún ritstýrt blöðum á borð við Iceland Review, Sirkus Reykjavík, ReykjavíkMag og Atlantica. Þá hefur hún skrifað tískupistla í Fréttablaðið ásamt því að vera kynningarfulltrúi í Hörpu og meðlimur í rokksveitinni Two Step Horror. Anna Margrét hefur starfað sem blaðamaður hjá mbl.is frá árinu 2014 og hefur umsjón með Iceland Monitor.

Anna Margrét hefur sent frá sér eina bók en það er barnabókin Milli svefns og vöku. Laufey Jónsdóttir sá um myndskreytingar og var bókin tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur 2019 sem besta myndlýsta bókin.

Anna Margrét býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni.


Ritaskrá

  • 2018  Milli svefns og vöku

Tilnefningar

  • 2019  Til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur í flokkur myndlýstra bóka fyrir Milli svefns og vöku