SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 7. maí 2024

LJÓÐLESTUR Í HÁDEGINU 8. MAÍ

 

Miðvikudaginn 8. maí stíga skáld á stokk og lesa úr ljóðabókum sínum sem tilnefndar voru til ljóðlistarverðlaunanna MAÍSTJÖRNUNNAR.  Upplesturinn verður í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í hádeginu, kl. 12-13.



 

Tilnefndar ljóðabækur eru:

 

Áður en ég breytist eftir Elías Knörr
Dulstirni/Meðan glerið sefur eftir Gyrði Elíasson
Vandamál vina minna eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur
Flagsól eftir Melkorku Ólafsdóttur og Unu Hlíf Bárudóttur
Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur
Í myrkrinu fór ég til Maríu eftir Sonju B. Jónsdóttur

 

Ljóðlistarverðlaunin MAÍSTJARNAN eru einu verðlaunin á Íslandi sem veitt eru eingöngu veitt fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Tilnefndar bækur eru til sýnis við innganginn í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar.

Allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2023, alls 83, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns voru gjaldgengar.

MAÍSTJARNAN verður síðan veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni eftir viku; þann 15. maí en dómnefndina skipa skáldin Guðrún Eva Mínervudóttir, fyrir hönd Rithöfundasambandsins, og Jakub Stachowiak, fyrir hönd Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns.

Tengt efni