SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 3. janúar 2024

AUÐUR HARALDS LÁTIN

Auður Haralds rithöfundur lést á Landsspítalanum í gær eftir stutt veikindi, 76 ára að aldri.

Auður fæddist í Reykjavík þann 11. desember 1947. Hún var blaðamaður, þýðandi, útvarpskona og pistlahöfundur og sinnti verslunar-, skrifstofu- og verksmiðjustörfum. Í skáldsögum sínum fjallaði hún um kvennakúgun og hlutskipti lágstéttarkvenna og stíll hennar einkennist af íróníu, frumlegum myndhverfingum og sviðsetningum. Fjöldi greina eftir Auði um jafnréttis- og samfélagsmál hafa birst í fjölmiðlum. 

Fyrsta skáldsaga Auðar, Hvunndagshetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn, kom út árið 1979. Hún vakti mikla athygli og opnaði umræðu í samfélaginu um heimilisofbeldi og kvennakúgun.

Auður fylgdi þeirri bók eftir með Læknamafíunni sem út kom 1980. Undir titilinum framan á bókarkápunni stendur ,,Lítil pen bók eftir Auði Haralds“ en þannig vísar Auður til þeirra niðrandi ummæla sem kvenrithöfundar fengu um skáldverk sín á þessum tíma.

Hlustið þér á Mozart? kom út 1982; íronísk ádeilda á innantómt líf heimavinnandi húsmóður sem les formúlukenndar ástarsögur til að drepast ekki úr leiðindum. Síðar gerði Auður makalaust grín að þeirri bókmenntategund í Ung, há, feig og ljóshærð sem er paródía á slíkar ástarsögur.

Auður skrifaði afar vinsælar barnabækur um prakkarann Elías sem byggðu á innslögum sem hún skrifaði ásamt Valdísi Óskarsdóttur fyrir Stundina okkar. Unglingabókin Baneitrað samband á Njálsgötunni (1985) varð einnig afar vinsæl og síðar var gerð leikgerð eftir henni sem sett var á svið í íslensku Óperunni og víðar. 

Auður tilheyrir þeim hópi kvenrithöfunda sem hætti að skrifa á níunda áratugnum en kenningar um ástæður þess eru reifaðar í lokaritgerð Kolbrúnar Huldu Pétursdóttur frá 2014. Árið 2007 skrifaði Auður Litlu, rauðhærðu stúlkuna, barnabók með myndskreytingum eftir Vigdísi Hlíf Sigurðardóttur.

Auður bjó um skeið á Ítalíu en síðast á Bergþórugötunni. Skáld.is þakkar innilega fyrir framlag Auðar til íslenskra bókmennta og vottar aðstandendum samúð.

 

Hér er nýlegt, óborganlegt viðtal við Auði.

 

Heimildir:

Kolbrún Hulda Pétursdóttir. Húmor sem skjöldur. 2014

Í þættinum Bók vikunnar á rás eitt má heyra upplestur Auðar, brot úr viðtölum við hana o.fl.:

http://www.ruv.is/frett/hvunndagshetjan-audur-haralds

Mynd af Auði er fengin af vefnum Lifðu núna

 

 

 

 

Tengt efni